Flatarmál: 1440 m2
Lengd meðfram götu: um 40 m
Dýpt lóðar frá götu: rúmlega 30 m
Frábær útsýnislóð sem stendur nokkru hærra en lóðirnar norðan við, hinum megin Grundargötu. Beint útsýni er út á sjóinn til norðurs og að Kirkjufelli, að Klakki og Eyrarfjalli til austurs og Mýrarhyrnu til vesturs.
Lóðin er staðsett í hallandi landi og hækkar frá götunni. Stór hluti hennar er 2-4 metrum ofan við gangstéttarhæð og aftari lóðarmörk eru um 8 metrum hærri en gangstéttin. Aftan við lóðina er brött brekka sem myndar gott skjól. Samspil landslags og húss getur boðið upp á áhugaverða möguleika.
Gönguleiðir í skóla: Leikskóli 540 m, grunnskóli 740 m og framhaldsskóli 330 m.
Umhverfisgæði: Auðvelt og stutt er að komast niður í fjöru með því að ganga yfir Grundargötu og niður botnlangana þar. Stutt er í Hönnubrekku (grænt svæði), þar sem börn renna á snjóþotum og sleðum á veturna og við svæði þar sem til stendur að gera aðlaðandi gönguleið eftir Hönnugili. Einnig er bein leið uppí skógræktarsvæðið og uppá reiðveg, sem liggur að hesthúsahverfinu, en stígurinn er einnig er vinsæll útivistarstígur íbúa. Þaðan er stutt í gönguleiðir ofan byggðar.
Lóðin hentar vel fyrir parhús eða fjölbýlishús á allt að þremur hæðum. Í aðalskipulagi (reitur ÍB-3) eru húsagerðum ekki settar miklar skorður, en þar segir að lóð nr. 63 sé heimilt að nýta fyrir íbúðarhúsnæði og/eða þjónustustarfsemi. Skilmálar aðalskipulags veita ennfremur heimild til að auka byggingarmagn á óbyggðum lóðum þar sem það þykir henta.
Ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu, en byggingar þurfa að vera í samræmi við byggðamynstur, þ.e. falla vel að aðliggjandi byggð, sem og að landslagi.
Líklega blönduð lóð en jarðvegsaðstæður þó ekki að fullu þekktar. Óska má eftir leyfi til að gera jarðvegsprufur til að kanna aðstæður.
Sjá hér til hliðar götumynd af ja.is - myndin opnast ef smellt er á hana. Fleiri myndir eru hér fyrir neðan.
Sjá samþykkt um gatnagerðargjald í þéttbýli Grundarfjarðar.
Sjá hér verðgrunn gatnagerðargjalda á vef Hagstofunnar.
Veittur er 50% afsláttur af gatnagerðargjaldi skv. samþykkt bæjarstjórnar um afslætti af tilteknum eldri lóðum á árinu 2025.
Dæmi: (reiknað í janúar 2024, háð mánaðarlegum vísitölubreytingum)
120 m2 íbúð í parhúsi: 1,2 millj. kr.
80 m2 íbúð í fjölbýli: 700 þús. kr.