LÓÐIRNAR VERÐA AUGLÝSTAR LAUSAR TIL ÚTHLUTUNAR 7. APRÍL 2026
Samliggjandi lóðir fyrir 2-3 hús, þ.e. reisa má 2 sérbýli eða 3 raðhús, á samtals 1441 m2. Lóðirnar liggja í brekkurótum sunnanvert í byggðinni, þær standa nokkru hærra en lóðirnar austan og norðan við þær og hafa því einstakt útsýni yfir bæinn, auk einstakrar nálægðar við náttúru og útivistarsvæði. Talsverð hækkun er strax ofan við gangstétt en hækkunin er annars aflíðandi. Samspil landslags og húss býður upp á áhugaverða möguleika.
Ölkelduvegur 39, sérbýli lóðarstærð 734 m2 eða raðhúsalóð 580 m2
Ölkelduvegur 41, sérbýli lóðarstærð 707 m2 eða raðhúsalóð 372m2
Ölkelduvegur 43, ekki gert ráð fyrir sérbýli, en lóðarstærð raðhúsalóðar 489 m2
Gönguleiðir í skóla: Leikskóli 670 m, grunnskóli 230 m og framhaldsskóli 620 m.
Umhverfisgæði: Kirkjan, dvalarheimilið og íbúðir eldri borgara rétt hjá. Lóðirnar eru umkringdar skógræktarsvæði og reiðvegur liggur sunnan/ofan við svæðið, en hann nýta bæjarbúar einnig til útivistar. Þaðan eru líka skemmtilegar gönguleiðir ofan byggðar, frisbígolfkörfur og rétt austan lóðanna er ölkelda sem nýtur hverfisverndar.
Stuttur spölur er í Grafargil sem er þröngt gljúfur með fallegum fossum. Þar og víðar í nágrenninu eru heimkynni huldufólks. Sjá hér umfjöllun um álfabyggð.
Hærra og Lægra Hellnafell, ofan við, mynda ramma um svæðið og skapa hlýlegt umhverfi.
Steinatjarnartúnið/Paimpolgarðurinn liggur rétt norðaustan við lóðirnar. Þar er stórt opið grænt svæði þar sem byrjað er að byggja upp fallegan og gróðurríkan garð með samspili við vatn.
Listaverkin Sýn eftir Steinunni Þórarinsdóttur, Veðurlistaverk Sólrúnar Halldórsdóttur, háhyrningur Unnsteins Guðmundssonar og steinarnir hans Listons eru öll í næsta nágrenni, sjá umfjöllun hér.
Lóðirnar eru innan deiliskipulags fyrir Ölkeldudal.
Í deiliskipulaginu segir m.a.:
Heimilt er að reisa, á 1-2 hæðum, annað hvort þrjú 180 fermetra raðhús (1 íbúð á lóð, lóðir 39-43) eða tvö sérbýli sem eru 220 fermetrar hvort (1 íbúð á lóð, lóðir 39-41). Á uppdrætti í kafla 6.9 eru þessar tvær útfærslur sýndar.
Gera skal ráð fyrir 1,5-2 bílastæðum á lóð.
Við hönnun húsa og frágang lóða þarf að huga sérstaklega vel að dreni og drenlögnum vegna ofanvatns sem rennur niður hlíðarnar fyrir ofan.
Komið verður upp ofanvatnsrás eða rásum fyrir ofan lóðirnar, sem geta þurft að vera allt að 2 m á breidd.
Gera skal grein fyrir frágangi á lóðarmörkum og öðrum lóðarfrágangi á aðal- eða lóðaruppdrætti, þar sem einnig fram komi hvernig meðhöndlun ofanvatns verður háttað á lóð og hún tengd aðliggjandi svæðum.
Á lóðamörkum skulu lóðarhafar hafa samráð um frágang. Þar sem lóðamörk liggja að opnum svæðum eða útivistarsvæðum skulu lóðarhafar hafa samráð við sveitarfélagið um útfærslu. Nota skal náttúrulegar lausnir/efni eins og kostur er.
Svæðið er grasi gróið og trjágróður á hluta svæðis. Vanda þarf sérstaklega frágang og meðferð ofanvatns vegna vatnsrennslis úr hlíðinni ofan við lóðirnar. Óska má eftir leyfi til að gera jarðvegsprufur til að kanna aðstæður.
Sjá hér upplýsingar um deiliskipulag.
Sjá hér til hliðar götumynd af ja.is, hún opnast ef smellt er á myndina. Fleiri myndir eru hér fyrir neðan.
Sjá hér verðgrunn gatnagerðargjalda á vef Hagstofunnar.
Dæmi: (reiknað í mars 2026, en háð mánaðarlegum vísitölubreytingum)
220 m2 einbýlishús: ca. 5,6 millj. kr.
180 m2 íbúð í raðhúsi: ca. 4 millj. kr.
Byggingarframkvæmdir við 5 íbúða raðhús á Ölkelduvegi 29-37 (des. 2023).
Nýjar lóðir liggja upp Ölkelduveginn, í framhaldi af þessum.
Trjám á byggingarreitum þarf að finna nýjan stað.