LÓÐUNUM VERÐUR ÚTHLUTAÐ Í EINU LAGI
LÓÐIRNAR VERÐA AUGLÝSTAR LAUSAR TIL ÚTHLUTUNAR 7. APRÍL 2026
Lóðir fyrir fjögur raðhús sunnan Paimpolgarðsins, en garðurinn myndar aðlaðandi baksvið. Lóðirnar liggja í næsta nágrenni við skóla- og íþróttasvæði, og útivistarsvæðið við suðurjaðar bæjarins.
Ölkelduvegur 10: 472 m2
Ölkelduvegur 12: 301 m2
Ölkelduvegur 14: 301 m2
Ölkelduvegur 16: 436 m2
Gönguleiðir í skóla: Staðsetning er bara steinsnar frá grunnskóla, tónlistarskóla, íþróttahúsi og sundlaug en leikskóli og framhaldsskóli eru um 600 m í burtu.
Umhverfisgæði: Lóðirnar eru við bæjarjaðarinn, skammt frá skógræktarsvæði og reiðvegur liggur sunnan/ofan við svæðið, en hann nýta bæjarbúar einnig til útivistar. Þaðan eru líka skemmtilegar gönguleiðir ofan byggðar og frisbígolfsvæði.
Stuttur spölur er í Grafargil sem er þröngt gljúfur með fallegum fossum. Þar og víðar í nágrenninu eru heimkynni huldufólks. Sjá hér umfjöllun um álfabyggð.
Brekkurnar Hærra og Lægra Hellnafell mynda ramma um svæðið og skapa hlýlegt umhverfi.
Steinatjarnartúnið/Paimpolgarðurinn liggur rétt norðan við lóðirnar. Í deiliskipulagi er stefnt að því að garðurinn verði skjólsæll, sólríkur, gróðurríkur og aðlaðandi sem íverusvæði til leikja, dvalar og útivistar allan ársins hring fyrir íbúa og gesti. Aðlaðandi votlendissvæði verði í hluta garðsins.
Listaverkin Sýn eftir Steinunni Þórarinsdóttur, Veðurlistaverk Sólrúnar Halldórsdóttur, háhyrningur Unnsteins Guðmundssonar og steinarnir hans Listons eru öll í næsta nágrenni, sjá umfjöllun hér.
Lóðirnar eru innan nýs Deiliskipulags Ölkeldudals sem tók gildi 2025. Gert er ráð fyrir að byggingarmagn á hverri lóð sé 130 m2 og hámarkshæð húss 4,5 metrar, þ.e. ein hæð.
Lögð er áhersla á að Paimpolgarðurinn sé vel tengdur með stígum við aðliggjandi útivistar-, íbúðar-, skóla- og íþróttasvæði, Fellaskjól og íbúðir fyrir aldraða. Lóðirnar liggja að Paimpolgarði og skal tryggja góðan frágang blágrænna ofanvatnslausna inní garðinn, í samráði við sveitarfélagið. Áhersla er á notkun gróðurs og gegndræps yfirborðs í tengslum við blágrænar ofanvatnslausnir, til fegrunar á umhverfinu og til skjólmyndunar.
Nánari upplýsingar í skipulagsgögnum.
Sjá hér upplýsingar um deiliskipulag.
Hér kemur merkjalýsing/lóðarblað.
Sjá hér til hliðar götumynd af ja.is, hún opnast ef smellt er á myndina. Fleiri myndir eru hér fyrir neðan.
Sjá hér verðgrunn gatnagerðargjalda á vef Hagstofunnar.
Dæmi: (reiknað í mars 2026, en háð mánaðarlegum vísitölubreytingum)
130 m2 íbúð í raðhúsi: 2,9 millj. kr.