LÓÐIRNAR ERU LAUSAR TIL ÚTHLUTUNAR SKV. ÁFANGASKIPTINGU
ÓÐIRNAR VERÐA AUGLÝSTAR LAUSAR TIL ÚTHLUTUNAR 7. APRÍL 2026
Iðnaðarsvæðið við Kverná hefur verið stækkað með gildistöku nýs deiliskipulags 2025. Á svæðinu eru skilgreindar rúmlega 20 misstórar lóðir. Úthlutun þeirra er áfangaskipt, skv. ákvörðun bæjarstjórnar, sbr. það sem myndin hér fyrir neðan sýnir.
Svæðið er mjög hentugt fyrir atvinnustarfsemi í bænum, skammt frá þéttbýlinu og höfninni og í beinum tengslum við þjóðveg 54, Snæfellsnesveg.
Hér í greinargerð deiliskipulags iðnaðarsvæðisins er að finna skilmálatöflu í kafla 5.19 (bls. 39) þar sem tilgreindar eru stærðir einstakra lóða, byggingarmagn o.fl.
Aðstæður eru ólíkar eftir lóðum. Á vestustu lóðunum þarf að fylla með efni ofaná núverandi landbotn, en annarsstaðar gæti þurft að sprengja. Jarðvegsaðstæður eru ekki að fullu þekktar. Ákvæði er um nýtingu bæjarins á jarðvegsefni. Óska má eftir leyfi til að gera jarðvegsprufur til að kanna aðstæður.
Sjá hér upplýsingar um deiliskipulag iðnaðarsvæðisins.
Sjá hér til hliðar götumynd af ja.is, hún opnast ef smellt er á myndina. Fleiri myndir eru hér fyrir neðan.
Sjá hér verðgrunn gatnagerðargjalda á vef Hagstofunnar.
Dæmi: (reiknað í mars 2026, en háð mánaðarlegum vísitölubreytingum)
800 m2 atvinnuhúsnæði = ca. 15,4 millj. kr.
1000 m2 atvinnuhúsnæði = ca. 19,2 millj. kr.
1200 m2 atvinnuhúsnæði = ca. 23 millj. kr.