Flatarmál: 799 m2
Lengd meðfram götu: 45 m
Dýpt lóðar frá götu: ca. 12-32 m
Spennandi útsýnislóð í grónu hverfi sem stendur nokkru hærra en lóðirnar norðan við og því beint útsýni út á sjóinn til norðurs og að Kirkjufelli, að Klakki og Eyrarfjalli til austurs og Mýrarhyrnu og Helgrindum til vesturs. Lóðin lækkar hratt niður frá götunni (til norðurs) og stór hluti hennar er 2-4 m neðan við gangstéttarhæð. Aftari lóðarmörk eru um 5 metrum lægri en gatan. Samspil landslags og húss býður upp á áhugaverða möguleika.
Gönguleiðir í skóla: Leikskóli 500 m, grunnskóli 610 m og framhaldsskóli 300 m.
Umhverfisgæði: Lóðin er rétt vestan við Hönnubrekku (grænt svæði), þar sem börn renna á snjóþotum og sleðum á veturna og við svæði þar sem til stendur að gera aðlaðandi gönguleið eftir Hönnugili. Einnig er örstutt uppí skógræktarsvæðið og uppá reiðveg, sem einnig er vinsæll útivistarstígur íbúa og þaðan í gönguleiðir ofan byggðar. Auðvelt og stutt er að komast niður í fjöru með því að ganga niður Fellabrekku, Fagurhólstún og Sæból.
Lóðin hentar vel fyrir einbýlishús eða parhús á einni eða tveimur hæðum. Ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu, en byggingar þurfa að vera í samræmi við byggðamynstur, þ.e. falla vel að aðliggjandi byggð, sem og að landinu. Stuðst er að hluta við skipulags- og byggingarskilmála fyrir Hjaltalínsholt. Í aðalskipulagi (reitur ÍB-3) eru húsagerðum ekki settar miklar skorður. Skilmálar aðalskipulags veita heimild til að auka byggingarmagn á óbyggðum lóðum þar sem það þykir henta, t.d. með því að leyfa aukaíbúðir þar sem stórar einbýlishúsalóðir eru.
Stutt er niður á fast en jarðvegsaðstæður ekki að fullu þekktar. Óska má eftir leyfi til að gera jarðvegsprufur til að kanna aðstæður.
Sjá hér til hliðar götumynd af ja.is - myndin opnast ef smellt er á hana. Fleiri myndir eru hér fyrir neðan.
Sjá samþykkt um gatnagerðargjald í þéttbýli Grundarfjarðar.
Sjá hér verðgrunn gatnagerðargjalda á vef Hagstofunnar.
Veittur er 50% afsláttur af gatnagerðargjaldi skv. samþykkt bæjarstjórnar um afslætti af tilteknum eldri lóðum á árinu 2025.
Dæmi: (reiknað í janúar 2024, háð mánaðarlegum vísitölubreytingum)
200 m2 einbýlishús: 2,3 millj. kr.
120 m2 íbúð í parhúsi: 1,2 millj. kr.
Útivistarsvæðið vestan til í Hjaltalínsholti, skammt frá lóðinni við Hellnafell 1