Sjávarútvegur hefur frá myndun þéttbýlis verið aðalatvinnugreinin í Grundarfirði og Grundarfjarðarhöfn er hjarta þeirrar starfsemi. Hafnaraðstæður eru einstaklega góðar frá náttúrunnar hendi, góð hafnarmannvirki og aðstaða hefur verið byggð upp og þjónusta hafnar og fjölbreyttra þjónustuaðila er margrómuð. Þetta er grunnurinn að fjölbreyttum tækifærum og uppbyggingu á starfsemi sem byggir á hafntengdum gæðum. Starfsemi hafnarinnar hefur aukist að umsvifum og breyst hratt á síðustu árum, bæði á sviði sjávarútvegs og ferðaþjónustu. Höfnin er vinsæl hjá aðkomuskipum sem koma til löndunar og nýta hér þjónustu, og komum skemmtiferðaskipa á sumrin hefur fjölgað verulega. Þetta skapar sókn í margvíslega aðra þjónustu á svæðinu.
Lóðin (lóðirnar) hefur ekki verið auglýst, en hafnarstjórn vekur athygli á þeim tækifærum sem í þessu felast. Engar aðrar lóðir eru lausar á hafnarsvæðinu til uppbyggingar.
Hafnarsjóður Grundarfjarðarhafnar keypti í febrúar 2026 fasteignina að Nesvegi 4. Með kaupunum tryggði hafnarsjóður yfirráð yfir lóðinni sem í gildandi deiliskipulagi er skipt í Nesveg 4 og Norðurgarð 2. Eftir breytingu lóðar, sem er í vinnslu, verða þær samtals um 6500 m2 að stærð.
Lóðin er einstaklega vel staðsett, alveg við Norðurgarð, sem er meginviðlegukantur hafnarinnar og þar í kring liggur aðalathafnasvæði hennar.
Á lóðinni stendur nú gamla hraðfrystihúsið sem hefur þjónað vel sínu hlutverki, en starfsemi hússins var samofin uppbyggingu byggðarinnar. Hafnarstjórn áformar að þetta gamla hús muni í framtíðinni víkja fyrir nýrri byggingu eða byggingum og að lóðin fái nýtt hlutverk. Mögulegt er að ráðstafa lóðinni í einu lagi eða skipta henni upp í smærri einingar, fyrir hafnsækna starfsemi.
Í gildi er deiliskipulag fyrir Framnes austan við Nesveg og er lóðin Nesvegur 4 innan marka þess.
Þegar skipulagið var unnið höfðu kaup hafnarsjóðs á Nesvegi 4 ekki farið fram, en viðbúið er að skipulagi þurfi að breyta vegna breyttrar notkunar lóðar og nýrra tækifæra.
Grundarfjarðarhöfn er eina höfnin sem getur tekið við stórum skemmtiferðaskipum á Vesturlandi, milli Reykjavíkur og Ísafjarðar. Myndina tók Tómas Freyr af skipinu Vasco da Gama við Norðurgarð Grundarfjarðarhafnar 28. október 2025.