Grundarfjarðarbær hefur unnið að því að auka framboð á íbúðarlóðum og fjölbreytni þeirra, til að geta mætt eftirspurn á komandi árum. Til viðbótar við eldri lausar lóðir eru nú komnar nýjar íbúðarlóðir í Ölkeldudal, fyrir raðhús, parhús og einbýli,
og fyrirhugaðar eru íbúðir í bland við þjónustu skv. skipulagi á miðbæjarreit. Á Háubökkum er hinsvegar gert ráð fyrir einbýlishúsum í samræmi við nærliggjandi hús sem þegar eru á íbúðarsvæði ÍB-4.
Í Aðalskipulagi Grundarfjarðar 2019-2039 er mörkuð stefna um að auka framboð fjölbreyttra íbúðarlóða í bænum. Einnig er þar sett sú stefna að nýta sem best þá innviði sem fyrir eru (götur, lagnir ofl.) og koma nýjum lóðum fyrir með sem minnstum tilkostnaði. Aðalskipulagið setur m.a. þá stefnu að bæta megi við íbúðarlóðum vestast á Grundargötu, neðan götu, og á fundi bæjarstjórnar Grundarfjarðarbæjar 9. september 2025 var kynnt að sú undirbúningsvinna væri hafin .
Í nóvember 2025 auglýsti bæjarstjórn skipulagslýsingu fyrir Háubakka, nýjar íbúðarlóðir við vestanverða Grundargötu. Lýsingin var bæði vegna fyrirhugaðs deiliskipulags og vegna breytingar sem gera þarf samhliða á reitnum ÍB-4 í Aðalskipulagi Grundarfjarðar 2019-2039. Með aðalskipulagsbreytingunni er reiturinn ÍB-4 stækkaður þannig að koma megi fyrir viðbótarlóðum fyrir einbýlishús, í samræmi við þau hús sem þegar eru vestast á Grundargötu.
Í febrúar 2026 var auglýst vinnslutillaga fyrir breytingu aðalskipulags vegna stækkunar reitsins og 9. mars sl. var samþykkt tillaga til auglýsingar, sem nú er til meðferðar hjá Skipulagsstofnun áður en hún verður auglýst. Þegar það hefur verið gert, verður sömuleiðis auglýst deiliskipulagstillaga sú, sem skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti 26. mars 2026. Málið er í vinnslu.
Svæðið er staðsett vestan við ystu hús á Grundargötu og er nokkurs konar hlið inn í bæinn frá vestri. Svæðið er mjög vel sýnilegt frá þjóðveginum með einstöku útsýni í átt að Kirkjufelli til norðvesturs og að Helgrindum til suðurs.
Um er að ræða gamalt landbúnaðarland sem hallar niður í átt að sjó og liggur lækur í gegnum svæðið. Vatnsrennsli á svæðinu hefur verið kortlagt, m.a. rennslið í læknum til þess að meta hversu nærri honum byggðin mætti vera. Íbúðarlóðir sem þarna eru áformaðar verða framlenging á núverandi íbúðarsvæði vestast við Grundargötu með tvöfalda röð af 1-2 hæða einbýlishúsum.