LÓÐUNUM VERÐUR ÚTHLUTAÐ Í EINU LAGI
LÓÐIRNAR VERÐA AUGLÝSTAR LAUSAR TIL ÚTHLUTUNAR 7. APRÍL 2026
Þrjár lóðir fyrir þrjú 100 m2 raðhús á einni hæð. Kvöð: Íbúðir eru ætlaðar íbúum 60 ára og eldri.
Um er að ræða nýjar lóðir vestan við Dvalar- og hjúkrunarheimilið Fellaskjól. Lóðirnar eru einstaklega vel staðsettar í nálægð við Dvalarheimilið, rétt við kirkjuna, sundlaug og íþróttasvæði. Í næsta nágrenni eru einnig íbúðir fyrir eldri borgara að Hrannarstíg 18 og 28-40.
Lóðirnar bjóða upp á fallegt útsýni yfir Kirkjufell, kirkjuna og bæinn, og eru í nálægð við fallega náttúru og útivistarsvæði.
Landhæð lóðanna er nokkuð jöfn.
Hrannarstígur 42, 44 og 46
Flatarmál lóða: 3x228 m2
Lengd meðfram götu: 12,2 m
Dýpt lóðar frá götu: 14 m
* Stærðir lóða geta breyst lítillega við fullnaðarhönnun (skv. deiliskipulagi).
Gönguleiðir í nærþjónustu: Sundlaug og íþróttahús 390 m, heilsugæslustöðin og Kjörbúðin 550-600 m.
Umhverfisgæði: Lóðirnar eru á skjólsælu svæði, rétt austan og neðan við Hjaltalínsholt. Stutt er í skógræktarsvæði og að reiðvegi, sem einnig er vinsæll útivistarstígur íbúa og þaðan í gönguleiðir ofan byggðar. Rétt vestan við lóðirnar rennur lækur eftir "Hönnugili" en þar er opið, grænt svæði sem á að gera að aðlaðandi gönguleið og aðstöðu til útivistar.
Paimpolgarðurinn liggur austan við svæðið. Þar er stórt opið grænt svæði þar sem byrjað er að byggja upp fallegan og gróðurríkan garð með samspili við vatn.
Listaverkin Sýn eftir Steinunni Þórarinsdóttur, Veðurlistaverk Sólrúnar Halldórsdóttur, háhyrningur Unnsteins Guðmundssonar og steinarnir hans Listons eru öll í næsta nágrenni, sjá umfjöllun hér.
Í næsta nágrenni eru þó nokkrir þekktir staðir þar sem finna má híbýli huldufólks. Sjá hér umfjöllun um álfabyggð.
Heimilt er að reisa þrjú 100 fermetra raðhús á einni hæð með innbyggðum bílskúr.
Þak skal vera mænisþak og þakhalli að lágmarki 14°.
Hámarkshæð íbúðarhúsa er 4,0 m mælt frá gólfkóta aðkomuhæðar.
Lóðirnar eru innan Deiliskipulags Ölkeldudals.
Í deiliskipulaginu segir m.a. um lóðirnar:
Íbúðir skulu vera fyrir 60 ára og eldri.
Leggja skal áherslu á að byggingar falli vel að landi og aðliggjandi byggð. Gera skal ráð fyrir að húsin verði felld inn í hæðina (gröftur frekar en fylling) til að lágmarka skerðingu á útsýni eins og frekast er unnt.
Grundarfjarðarbær mun sjá um gatnagerð á aðkomuvegi að lóðunum, sem haldast mun í hendur við undirbúning byggingarframkvæmda.
Vanda skal frágang á lóðarmörkum við Fellaskjól.
Sjá hér endanlega útgáfu deiliskipulags fyrir Ölkeldudal.
Sjá hér til hliðar götumynd af ja.is - myndin opnast ef smellt er á hana. Fleiri myndir eru hér fyrir neðan.
Gatnagerðargjald skv. gjaldskrá Grundarfjarðarbæjar.
Sjá hér verðgrunn gatnagerðargjalda á vef Hagstofunnar.
Dæmi: (reiknað í mars 2026, en háð mánaðarlegum vísitölubreytingum)
100 m2 raðhús: 1.920 þús. kr.
Raðhús með 3x100 m2 íbúðum: samtals ca. 5,8 millj. kr.
Séð ofan af Hjaltalínsholti yfir svæðið.
Lóðirnar eru hérna megin við Dvalarheimilið Fellaskjól, sem sést þarna fyrir miðri mynd.
Séð niður Hönnugil sem liggur í jaðri svæðisins þar sem lóðirnar verða.