Þróunarreitur á besta stað í miðbæ Grundarfjarðar, í alfaraleið á Snæfellsnesi, við aðalgötu bæjarins og megingatnamót.
Miðbæjarreiturinn er á miðsvæði (M-1) og er í dag heildstæð lóð, sem sameinuð var úr fjórum samliggjandi lóðum, Hamrahlíð 6 og 8 og Grundargötu 31 og 33, samtals um 2600 m2 að flatarmáli. Á einni þessara fyrrverandi lóða stendur fasteign í eigu bæjarins, sem keypt var af skipulagsástæðum og er hún ætluð til niðurrifs. Annars er svæðið autt, en er nýtt með tímabundnum stöðuleyfum, sem "svæði í biðstöðu".
Í Aðalskipulagi Grundarfjarðar 2019-2039 var mörkuð stefna um að skapa heildstæðari og þéttari byggð í miðbæ Grundarfjarðar þar sem verslun og þjónusta er í göngufæri og grunnkerfi eru vel nýtt.
Á árinu 2024 var sóst eftir hluta lóðanna, en bæjarstjórn samþykkti að lóðunum fjórum yrði einungis úthlutað sameiginlega, sem miðbæjarreit til þróunar og uppbyggingar.
Í byrjun árs 2025 unnu skipulags- og umhverfisnefnd og bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar að því að skýra forsendur fyrir uppbyggingu á miðbæjarreit og undirbúa útboð á byggingarrétti fyrir reitinn.
Aðalskipulag Grundarfjarðar gerir ráð fyrir blandaðri starfsemi; kjarna miðbæjar, með verslun og þjónustu og íbúðum,
og vönduðum almenningsrýmum. Unnin var breyting á aðalskipulagi 2025 (sjá staðfestingu hér) og jafnframt auglýst skipulagslýsing deiliskipulags á reitnum.
Útboð byggingarréttar fór fram, tilboð barst en lauk ekki með samningsgerð í þetta skiptið.
Bæjarstjórn mun leita tækifæra til uppbyggingar í samræmi við stefnu þá sem mörkuð er í aðalskipulagi, samþykktar forsendur 2025 og lýsingu deiliskipulags. Upplýsingar gefur bæjarstjóri.
Miðbæjarreiturinn er vel staðsettur í hjarta miðbæjarins á megingatnamótum við Grundargötu. Grundargata er miðsvæðis á þjóðleiðinni um Snæfellsnes, sem er í vaxandi sókn. Gegnt reitnum er heilsugæsla, kjörbúð, verslanir Lyfju og Vínbúðarinnar, bókasafn bæjarins o.fl.
Í Grundarfirði er öflugt og kraftmikið samfélag, fjölbreytt atvinnulíf og blómstrandi menningarstarfsemi. Íþróttastarf er öflugt, heilsugæsla, bókasafn, verslanir, kaffihús, veitingastaðir, leikskóli, grunnskóli, tónlistarskóli og Fjölbrautaskóli Snæfellinga. Grundarfjarðarhöfn er helsta farþegaskipahöfn á Snæfellsnesi.
Kirkjufell er eitt frægasta fjall í heimi og mest ljósmyndaða fjall landsins, sem laðar að gesti, árið um kring. Grundarfjörður á gríðarleg tækifæri sem útivistarparadís, með prýðis gönguland, golfvöll, reiðvöll, skíðasvæði og skotsvæði, auk einstakra tækifæra til siglinga og kajakróðurs.
Gert er ráð fyrir húsnæði fyrir blandaða starfsemi, annars vegar þjónustu og/eða atvinnustarfsemi á jarðhæð og mögulega einnig á efri hæðum og hins vegar íbúðum, einkum á efri hæðum. Heimild er fyrir þriggja hæða húsi, með möguleika á inndreginni fjórðu hæð.
Í aðalskipulagi segir þó um reit ÍB-2 (miðsvæði) að nýbyggingar (endurbyggingar) þurfi að falla vel að einkennum og yfirbragði þeirrar byggðar sem fyrir er.
Á mestöllu svæðinu hafa áður staðið byggingar og er því ekki reiknað með að mikil efnisskipti þurfi.
Sjá hér til hliðar götumynd af ja.is - myndin opnast ef smellt er á hana. Fleiri myndir eru hér fyrir neðan.