Fellabrekka 7-9, stærð 15-30 x 37 m, samtals 1170 m2
Fellabrekka 11, stærð 18,3 x 30-38 m, 390 m2
Fellabrekka 13, stærð 12,3 x 29 m, 337,4 m2
Fellabrekka 7-9: Sjá hæðar- og lóðarblað (byggingarreitir eru leiðbeinandi).
Fellabrekka 11-13: Sjá hæðar- og lóðarblað (byggingarreitir eru leiðbeinandi).
Fjórar samliggjandi lóðir með einstakt útsýni þar sem þær standa mun hærra en lóðirnar norðan við. Til norðurs er útsýni yfir fjörðinn að Kirkjufelli og Melrakkaey, til austurs að Klakki og Eyrarfjalli, til vesturs að Mýrarhyrnu og Helgrindum.
Hús eru einungis sunnan megin í götunni - ekki verður byggt norðan til í götunni. Lóðirnar standa í brekku en fremri hluti lóðanna hefur verið jafnaður þannig að stór hluti lóðanna er 0-2 metrum hærri en gatan. Um 10-15 metrum aftan við götuna er brött brekka sem myndar gott skjól. Aftari lóðarmörk eru 6 metrum hærri en þau fremri. Samspil landslags og húss getur boðið upp á áhugaverða möguleika.
Gönguleiðir í skóla: Leikskóli 650 m, grunnskóli 750 m og framhaldsskóli 450 m.
Umhverfisgæði:
Til vesturs og suðurs er örstutt í skógræktina og uppá reiðveg, sem einnig er vinsæll útivistarstígur íbúa og þaðan í gönguleiðir ofan byggðarinnar.
Ekki langt frá er Hönnubrekka, þar sem börn renna á snjóþotum og sleðum á veturna. Auðvelt og stutt er að komast niður í fjöru með því að ganga beint niður á Grundargötu eða eftir Fellabrekku, niður Fagurhólstún og Sæból.
Lóðirnar henta vel fyrir einbýlishús, parhús eða fjölbýlishús á tveimur hæðum. Ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu.
Byggingar þurfa að vera í samræmi við byggðamynstur, þ.e. falla vel að aðliggjandi byggð. Stuðst er að hluta við skipulags- og byggingarskilmála fyrir Hjaltalínsholt.
Í aðalskipulagi (reitur ÍB-3) eru húsagerðum ekki settar miklar skorður. Aðalskipulagsbreyting í júní 2025 heimilar byggingu allt að 8 íbúða á 4 lóðum saman, á 1-2 hæðum í fjölbýli eða sérbýli.
Skilmálar aðalskipulags veita heimild til að auka byggingarmagn á óbyggðum lóðum þar sem það þykir henta.
Stutt er niður á fast en jarðvegsaðstæður ekki að fullu þekktar. Óska má eftir leyfi til að gera jarðvegsprufur til að kanna aðstæður.
Sjá hér til hliðar götumynd af ja.is - myndin opnast ef smellt er á hana. Fleiri myndir eru hér fyrir neðan.
Sjá samþykkt um gatnagerðargjald í þéttbýli Grundarfjarðar.
Sjá verðgrunn gatnagerðargjalda á vef Hagstofunnar.
Veittur er 50% afsláttur af gatnagerðargjaldi skv. samþykkt bæjarstjórnar um afslætti af tilteknum eldri lóðum á árinu 2025.
Dæmi: (reiknað í janúar 2024, háð mánaðarlegum vísitölubreytingum)
200 m2 einbýlishús: 2,3 millj. kr.
120 m2 íbúð í parhúsi: 1,2 millj. kr.
120 m2 íbúð í fjölbýli: 1,1 millj. kr.
80 m2 íbúð í fjölbýli: 700 þús. kr.