Flatarmál: 649 m2
Lengd meðfram götu: 29 m
Dýpt lóðar frá götu: 25 m
Einstök útsýnislóð sem stendur í landhalla í jaðri byggðar á Hjaltalínsholti. Beint útsýni er til norðausturs og austurs yfir fjörðinn, á Klakk og Eyrarfjall, Grundarmön og til suðurs upp í fjallgarðinn. Götumegin er útsýni í Helgrindur og Mýrarhyrnu. Lóðin lækkar frá götunni. Samspil landslags og húss býður upp á áhugaverða möguleika. Sunnan og aftan við lóðina er opið svæði og um 30 metrum aftan við lóðina er lækur.
Sunnan við lóðina er laus lóð að Fellasneið 7.
Gönguleiðir í skóla: Leikskóli 800 m, grunnskóli 450 m og framhaldsskóli 600 m.
Umhverfisgæði:
Einstök útsýnislóð og náttúrulegt umhverfi.
Rétt handan götunnar er aðgengi upp í skógrækt og uppá reiðveg, sem einnig er vinsæll útivistarstígur íbúa og þaðan í gönguleiðir ofan byggðar. Um 30 metrum neðan við lóðina rennur lækur og þar er útivistarsvæði í "Hönnugili" þar sem til stendur að gera aðlaðandi gönguleið og aðstöðu til útivistar. Þar rétt við er einnig Hönnubrekka, þar sem börn renna á snjóþotum og sleðum á veturna. Auðvelt og stutt er að einnig komast niður í fjöru með því að ganga niður Fellasneið, Fagurhólstún og Sæból.
Norðan við lóðina stendur álfasteinn sem úthlutað var lóðarnúmerinu 3 við Fellasneið. Sjá hér umfjöllun um álfabyggð.
Lóðin er innan deiliskipulags fyrir Ölkeldudal og er heimild fyrir allt að 210 fermetra sérbýli á einni hæð með kjallara. Þak skal vera mænisþak. Við hönnun skal leggja áherslu á að fella hús og lóð vel að landi og vanda frágang á lóðarmörkum við útivistarsvæði. Gera skal grein fyrir frágangi á lóðamörkum á aðal- og/eða lóðauppdráttum.
Í samræmi við deiliskipulag skal, áður en framkvæmdir hefjast, leitast við að verja eða flytja til trjá- og runnagróður eins og frekast er unnt. Forðast skal rask á gróðri utan lóðar eða svæða sem framkvæmdir ná til og gróðursetja eða þökuleggja sár með viðeigandi gróðurþekju.
Landhalli er í lóðinni, en jarðvegsaðstæður ekki að fullu þekktar. Óska má eftir leyfi til að gera jarðvegsprufur til að kanna aðstæður.
Sjá hér til hliðar götumynd af ja.is - myndin opnast ef smellt er á hana. Fleiri myndir eru hér fyrir neðan.
Sjá samþykkt um gatnagerðargjald í þéttbýli Grundarfjarðar.
Sjá hér verðgrunn gatnagerðargjalda á vef Hagstofunnar.
Dæmi: (reiknað í janúar 2024, háð mánaðarlegum vísitölubreytingum)
200 m2 einbýlishús: 4,6 millj. kr.
120 m2 íbúð í parhúsi: 2,4 millj. kr.
Álfabyggðin í Fellasneið 3
Séð yfir svæðið, rétt ofan við Fellasneið 5-7